Una Torfa hefur skapað sér sterka sérstöðu í íslensku tónlistarlífi með grípandi lagasmíðum, einlægum textum og persónulegri nálgun. Tónlist hennar nær að vera bæði létt og kraftmikil á sama tíma og hefur höfðað sérstaklega sterkt til yngri kynslóða. Á sviði er Una Torfa einlæg, lífleg og með sterka nærveru sem gerir tónleikana persónulega og eftirminnilega. Hún hentar vel fyrir tónlistarhátíðir, fyrirtækjaviðburði, bæjarhátíðir og aðra viðburði þar sem leitað er að vinsælu íslensku tónlistaratriði með sinn eigin karakter.